Myndir: Nýir tímar á Flickr

November 13th, 2008

Jóhann Þröstur Pálmason hefur verið gríðarlega duglegur að taka myndir af þeim mótmælum sem hafa farið fram hérna í Reykjavík undanfarnar vikur. Hægt er að skoða allar myndirnar á Flickr auk þess sem hann Jóhann hefur stofnan opinn hóp þar sem allir geta bætt við sýnum myndum af mótmælunum.

Næstu daga verður einning hægt að skoða eitthvað af þessum myndum hérna á síðunni. Verið er að vinna í síðunni, öllum ábendingum má koma á netfangið mitt, andrisig at gmail.com

Flickr síður: Burt með Davíð, Rjúfum þögn ráðamanna, Vík burt ríkisstjórn

One Response to “Myndir: Nýir tímar á Flickr”

  1. Tómas Vilhj. Albertsson

    Þeir sem taka myndir mega gjarnan senda á mig myndir af Mótmælaspjöldum, borðum, barmmerkjum og skringilegum fataburði mótmælenda sem höfða til kreppuástandsins.
    Ég er að skrifa MA ritgerð um tákn og merki í mótælum á íslandi post war.

    Menn geta sent þetta á galdratommi@googlemail.com eða sent mér hlekkina þar sem þeir setja þær á internetið. Aðrir sem eru með videóupptökur mega gjarnan senda mér tölvudiska á addressuna hér fyrir neðan. Ég vill gjarna fá nöfn ljósmyndaranna með ef ég skyldi nota eitthvað myndunum í ritgerðina.

    Kær kveðja
    Tómas Vilhj. Albertsson
    Þjóðfræðingur

    17 Blakeney place
    YO10 3HZ York, Yorkshire
    England (UK)

Bæta við svari