Tilkynning vegna mótmæla á morgun
November 14th, 2008
Mótmælin eru ekki hugsuð sem áróður um að taka upp Evru eða ganga inn í ESB heldur bara til að minna fólk á að lausnirnar sem voru lagðar á borð í dag voru á engan hátt fullnægjandi að flestra mati, það var ekkert talað um krónuna - gjaldmiðilinn okkar - sem er í frjálsu falli. Fólk hefur mestar áhyggjur af því og er nú ráðvilltara en nokkru sinni fyrr.
Við erum óháð en það mega allir tjá sig hvernig sem þeir vilja en við tökum ekki undir áróður af pólitísku tagi á nokkurn hátt.
Þetta er ætlað þeim sem vilja láta svekkelsi sitt í ljós en ekki skipun til eins né neins - aðeins tillaga! Öllum er frjálst að velja - hafna, þannig virkar nú bara lýðræðið.
Að kasta krónunni er eingöngu gert til að minna þá á að fólk vill fá svör núna hvað gjaldmiðilinn okkar snertir og ekkert meira en það? Við getum mótmælt því að búið sé að eyðileggja krónuna, sama hvaða leið verður svo fyrir valinu.

í framhaldi af því sem ég skrifaði í gær vil ég benda á neðangreinda frétt sem kemur af http://www.ruv.is.
Við skulum halda landinu og öllu sem því fylgir útaf fyrir okkur.
Fyrst birt: 15.11.2008 19:25
Síðast uppfært: 15.11.2008 19:28
Bílaframleiðendur í erfiðleikum
15% færri bílar seldust í Evrópu í október en í sama mánuði í fyrra. Þetta var sjötti mánuðurinn í röð þar sem bílasalan dróst saman. Opel í Þýskalandi hefur óskað eftir aðstoð þýska ríkisins til að forðast þrot og uppsagnir nær þrjátíu þúsund starfsmanna.
Alls seldust ein milljón þrjátíu og fimm þúsund nýir bílar í Vestur Evrópu í síðasta mánuði. Í öllum löndum Evrópusambandsins dróst salan saman að Austurríki undanskildu en þar jókst hún um 4%.
Margir bílaframleiðendur eiga í miklum erfiðleikum og Opel í Þýskalandi sér ekki aðra leið en óska eftir láni frá þýska ríkinu, jafngildi 34.000 milljarða króna en stjórnvöld höfðu áður tilkynnt að þau væru tilbúin að aðstoða bílaframleiðendur að uppfylltum vissum skilyrðum.
Opel er með þrjár verksmiðjur í Þýskalandi og þar voru smíðaðir 540.000 bílar í fyrra og Opel er þriðja söluhæsta bíltegund þar í landi á eftir Wolkswagen og Mercedes Benz. Starfsfólkið segist ekki geta annað en beðið og vonað.
Opel hefur smíðað bíla frá 1899 og verið í eigu General Motors frá 1929. Auk Þýskalands er Opel með verksmiðjur í Belgíu, Póllandi, Portúgal og Bretlandi.