Þjóðfundur 1. desember á Arnarhóli

November 28th, 2008

Borgarahreyfingin hvetur alla landsmenn til að sýna samstöðu og krefjast breytinga á stjórn landsmála og breytinga á stjórnsýslu með því að leggja niður vinnu og mæta á Þjóðfund á Arnarhóli klukkan 15:00 mánudaginn 1. desember. Borgarahreyfingin stendur algerlega utan við alla stjórnmálaflokka og telur að núverandi stjórnvöld sem og stjórnarandstaða hafi glatað trausti landsmanna,” segir ennfremur.

Frummælendur verða:

Einar Már Guðmundsson rithöfundur
Margrét Pétursdóttir verkakona
Snærós Sindradóttir nemi
Þorvaldur Gylfason hagfræðingur

Blaz Roca (Erpur) rappar um þjóðmál

Borgarahreyfingin hvetur til þess að öll samtök launþega veki athygli félagsmanna sinna á fundinum og að Samtök atvinnulífsins sýni vilja sinn til þjóðarsáttar og hvetji aðildarfélög sín til að gefa starfsfólki leyfi frá störfum,” segir að lokum.

Undir þetta kvitta:

Hreyfingin fyrir nýju lýðveldi á Íslandi; Raddir fólksins; Borgarafundurinn; Neyðarstjórn kvenna; Þjóðmálahópurinn frá lýgræði til lýðræðis; Framtíðarlandið; Anarkistar; Nýir tímar; Nóvemberhópurinn; Ábyrgð, Vald og Þjóð ;Nýtt lýðveldi; Not in Our Name; Dagblaðið Nei

2 Responses to “Þjóðfundur 1. desember á Arnarhóli”

  1. Gott mál. Ég mæti og sendi póst á alla sem ég þekki. Gott að við erum að sjóast í þessum ólgusjó og með æfingunni förum við að standa mótmælaölduna.

  2. Gissur Simonarson

    Mæti hress!

Bæta við svari