Sjálfboðaliðar til söfnun undirskrifta fyrir kjosa.is
November 28th, 2008
Nýir tímar og Kjósa.is ætla að vera á Austurvelli á morgun og á Arnarhól á mánudaginn við söfnun undirskrifta til þess að þrýsta á stjórnvöld að boða til kosninga. Þeir sem geta lagt okkur lið eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur tölvupóst á netfangið: nyirtimar@nyirtimar.com
Söfnunin á Kjósa.is hefur verið í gangi í nokkrar vikur en aðeins hafa safnast 6.000 undirskriftir.
Kjósendur á Íslandi telja ekki fært að hefja uppbyggingarstarf eftir bankahrunið nema með endurskoðuðu umboði stjórnvalda. Í lýðræðisþjóðfélagi er það aðeins hægt með kosningum til Alþingis og myndun ríkisstjórnar byggða á þeim meirihluta sem þá nær saman eða þjóðstjórn fái enginn flokkur skýrt umboð kjósenda.
Því fleirir sjálfboðaliðar, því betra! Hvetjum ykkur öll til að vera dugleg að skrá sem flesta inn rafrænt á kjosa.is og verum dugleg að hjálpa öðrum til að skrá sig inn líka.
