Mótmæli á Austurvelli #9
December 5th, 2008
Áfram halda friðsamleg mótmæli á Austurvelli gegn því kreppuástandi sem myndast hefur á Íslandi. Á hverjum laugardegi streyma þúsundir manna á Austurvöll og krefjast afsagnar núverandi stjórnar Seðlabankans, afsagnar núverandi stjórnar gjaldeyrsieftirlitsins og nýrra kosninga.

Verum friðsamleg og týnum upp ruslið á Austurvelli, það er svo sætt.
Nei!! ef við höldum þessu áfram sauðheimskum mótmælum eins og voru síðustu helgi þá mætir enginn og þetta verður einsöngur þinn Hörður.
Reyndu að sýna smá hörku og kraft ekki tönslast á sama stefinu allar helgar, það missir marks.
Það þarf fleirri Einsa Guðmunds og Katrínu Oddsdóttur , ekki einhverja sem svæfa lýðinn eins og síðustu helgi.
Bergur; Ég er svo sem sammála því að mér líður stundum eins og lófaklappið hafi runnið sitt skeið…EN…. ég minni mig þá á að það er aldrei neikvætt að sýna samstöðu. Ég tek ekki í mál að láta mig vanta á Austurvöll. Þar sýni ég samstöðu og vandlætingu mína
Ef það verða plön um eitthvað sem fer nær þeirri byltingu sem liggur í loftinu þá mun ég LÍKA mæta þangað
Heiða, Ég vona innilega að unga fólkið mæti og sýni þann kjark sem það gerði á fyrri fundum og við eldri lærum af þeim.
Það á ekki að taka þessari aftanítöku sem fólkið í landinu er að fá yfir sig á næstu misserum sem sjálfsagðri, NO WAY Jhosei.
Um síðustu helgi voru þessi mótmæli eins og 17.Júní fundur þar sem fjallkonan talaði um þunglyndi væri eins og frumefni.
Ef þessi fundur í dag verður á sömu nótum þá er þetta hrein uppgjöf.
Málum leikhúsið RAUTT í þetta skiptið!!!!!
Þetta er landið sem að maður ann. En því miður er ekki búandi á því fyrir spillingu lengur.
Bergur: Fundurinn getur aldrei orðið magnaðri en fólkið sem mætir á hann. Það þýðir lítið að sitja heima og kvarta yfir því að fundurinn sé ekki eins og þú viljir hafa hann!!
photo: Af því að þetta er landið sem maður ann þá fer maður ekki fet!! Ég ætla að rembast eins og ég get við að reyna fá fram breytingar til að fá landið mitt heilt.
Það gerist ekki ef fólkið sem ann landinu fer í burtu
Ég hef látið sjá mig þarna niðurfrá eins oft og ég get, kem frá keflavík til þess að sýna samstöðu, en það vill orðið svo til að stjórnvöld hlusta bara ekki á okkur lengur, viðkvæðið hjá þeim er alltaf… já fólk á sinn rétt til að mótmæla… en við þurfum ekkert að hlusta á það eða taka það til okkar… nú reyna einhverjir spjátrungar að koma þvi að sem víðast að rödd mótmælenda sé nú ekki rödd þjóðarinnar, mótmælin eru án efa rödd stórs hluta þjóðarinnar.
Því miður sýnist mér einnig að ætlun stjórnvalda sé að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að viðhalda óbreyttu Íslandi meðan almúginn þráir breytingu, vill spillingaröflin burt hvar sem þau kunna að leynast og nýtt ísland, ekkert sem stjórnvöld hafa lagt af mörkum er nógu róttækt til að við getum kallað viðleitni þeirra nýja tíma eða nýtt ísland.
Ég er með ótalhluti á handraðanum sem þarf a breyta í okkar samfélagi, ég hef meira að segja átt ágæt samskipti við nokkra ráðamenn þjóðarinnar á undanförnum árum en þvi miður talar maður oftast fyrir annað hvort daufum eyrum eða tómum hausum.
Ráðamenn eru ánægðir þar sem þeirra helsta markmið er að vera í ríksstjórn, hvað þeir leggja af mörkum virðist síðan aukaatriði.
Stjórnvöld ganga út frá því sem vísu að við gefumst upp. Ekki láta það eftir þeim Steinar ;)
Væri ekki betra að mótmæla við Túngötu 6 (Baugur) eða Suðurgötu 22 ( Fons) Jafnvel mætti lífga upp á pleisin með eggjum og rauðri málingu. Munum eittþúsundmilljarðar.
hg
Það er líka góður staður að mæta fyrir utan þetta hús: Fons að Suðurgötu 22 í Reykjavík. Fons átti því bæði félögin.
FS37 ehf. keypti bréf í Glitni og FL Group fyrir samtals 24,8 milljarða króna þann 14. nóvember 2007. Félagið breytti nafni sínu í Stím ehf. tveimur dögum síðar. Glitnir var sjálfur seljandi bréfanna en lánaði Stím 19,6 milljarða króna til kaupanna. Stærsti eigandi Glitnis var FL Group sem í dag heitir Stoðir. Fons var á meðal stærstu eigenda FL Group sem átti um þriðjungshlut í Glitni.
Þarna er hægt að kasta eggjum og málningu til þess eins að sýna þessum djöflum að við erum ekki búin að afgreiða þá.
Enda stutt að fara frá Austurvelli og aumingja Pálmi þarf að borga þrifin sjálfur.
Það þarf að sýna úthald og ekki gefast upp. Skemmtilegt dæmi er um að hópur ungra nýnasista settust að í húsi í smábæ í Danmörku rétt hjá grunnskóla staðarins. Nýnasistarnir voru óvinsælir og bæjarbúar vildu ekki hafa þá í bænum og hvað þá rétt hjá skólanum. Bæjarbúar tóku það ráð að safnast saman fyrir framan hús nýnasistanna á hverju kvöldi kl. hálf sjö, kveikja á kertum og syngja ættjarðarlög í hálftíma. Þegar þetta hafði gengið svona í rúmt ár þá fluttu nýnasistarnir í burtu. Þoldu bara ekki meir.
Ég mun mæta framá sumar niðra austurvelli, en dagskráin núna 6ta var frekar léleg. Hörður þarf aðeins að passa uppá að hafa dagskránna alltaf góða.
Þessir fundir eru meir að segja hættir að komast að ráði í fjölmiðla. Það er hreinlega ekki nógu gott og ef tilgangurinn er að setja pressu á ríkisstjórnina þá þarf að breyta um takt. Það var reyndar boðað að það yrðu einhverjar “skyndi” aðgerðir í vikunni… bíð spenntur eftir þeim og stefni að því að mæta ef maður heyrir af þeim tímanlega…
Í staðinn fyrir að fara heim eftir mótmælin á laugardögum ætti fólk bara að taka með sér mat og teppi og setjast niður og sitja sem fastast öll saman þar til mark verður tekið á okkur! Verst að það sé bölvaður vetur.. Hugsa sér kanski 10.000 manns sem sitja alla nóttina og langt framá næsta dag og neita að hreyfa sig fyrir enn eitthvað að búið að gera! Taka bara með trommur og hljóðfæri.
Þetta er búið!!! Bjössi Bjarna, er búin að vinna án þess að nokkur tók þátt nema ungviðið sem er varla byrjað að skulda eins og við sem erum með börn og húskofa veðsetta í topp.
Hvað er að okkur? erum við bara til í að Öskra í okkar eigin kaffibolla?
Og svo grenjum við í bala og segjum þegar við eigum ekkert og enginn til í að ræða málin shitt !
Það vantar alvöru fólk eins og Katrínu Odds og aðra sem hafa stefnu og þor, gefum þeim full völd.
Þetta verður ekki verra en það er í dag, enginn nennir að týna rusl og mæta á Austurvöll og hlusta á gjamm sem er raus, bull og endurtekning og mun gleymiast á leiðinni út í bíl.