Mótmæli á Austurvelli #10
December 12th, 2008
Margar glæsilegar ræður hafa verið fluttar á Austurvelli á fjölmennum mótmælafundum undanfarnar 9 vikur. Yfirskrift þeirra hefur verið Breiðfylking gegn ástandinu. Í undanfara jólanna hefur skiljanlega dregið úr aðsókn á fundina. Mæður og feður vilja búa börnum sínum gleðileg og friðsæl jól. Slíkt er sjálfsagt og eðlilegt, en um leið er engin ástæða til að leggja fundina af. Þessar aðstæður kalla hins vegar á breytt fundarform.

Það er alveg nauðsynlegt að hafa hjóð á morgun:(þetta eru mótmæli vegna 1ns drengs sem lést)
Mótmælin gegn grísku stjórninni breiðast út
Mótmæli blossuðu upp að nýju á götum stærstu borga Grikklands í dag eftir að Costas Karamanlis forsætisráðherra sagði að ekki kæmi til greina að verða við kröfu stjórnarandstöðunnar um að hann segði af sér.
Mótmælin gegn stjórn Karamanlis breiddust einnig út til Frakklands og Þýskalands. Um 300 manns hófu mótmæli við sendiráð Grikklands í París og hundruð mótmælenda létu í ljós stuðning við grísku stjórnarandstöðuna á götum Berlínar
Og við ætlum að mótmæla í hljóði þegar heil þjóð er tekinn í rassgatið!!!!
Bergur, ekki til að vera með einhver leiðindi, en mótmælin í grikklandi eru ekki bara vegna drengsins sem lögreglan skaut, heldur er þetta uppsöfnuð gremja og reiði í garð ríkisstjórnarinnar vegna ástandsins sem er þar og hefur verið í einhvern tíma.
Allt gengið vel , vonandi.
Allir hafa haldið kjafti og týnt upp rusl.
Mikil gleði hjá valdhöfum.
Smá klippa úr DV:
Eru þetta ekki nægileg skilaboð að þessir hundar séu hræddir?
Það er komin tími á byltingu strax eftir áramót.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur verið með lífverði á sínum snærum og öfluga lögregluvakt við heimili sitt. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur sömuleiðis verið með lífverði, enda búið að sparka í rassgatið á honum í World Class.
Það er ríkislögreglustjóri sem leggur hinum umdeildu ráðmönnum til þessa þjónustu. DV hefur spurt Björn Bjarnason dómsmálaráðherra um kostnað vegna gæslu embættismannanna en ráðherrann neitar að svara því, væntanlega af öryggisástæðum.
Enginn í SF er með varðhund.
Sæll Karl,
Óeirðirnar í Aþenu eru ekki aðeins vegna aumingjans drengsins allt rétt hjá þér.
Hins vegar eru sömu krankar á málum þar eins og hér víðtekin tenglslaspilling og gríðarlegur aumingjaháttur stjórnvalda.
Við vonandi eigum ekki eftir að vera í sömu sporum og þeir varðandi morð lögreglumanns á ungum dreng sem var bara óheppilega staddur eins og lögreglan sagði.
Í annan stað erum við sama og Grikkir að tala sama mál og við um SPILLINGU !!! og við þurfum svo sannanlega að fara að taka til . Og þá með lýðræðislegum tiltektum.
Mundu að drengurinn í Aþenu var því miður í skotlínu og fór sem fór. Við þurfum ekki píslarvotta en við höfum sökudólga!!!
Hvernig væri að taka upp hugmyndir Njarðar P Njarðvík. Eina leiðinn til að bjarga íslandi.
/Users/bjarnimarbjarnason/Desktop/Njarðvík.doc
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/751427/
Betra að ná í Njarðvík á þessum slóða.