Mótmæli og sigurhátíð
January 30th, 2009
Raddir Fólksins boða til vikulegra mótmæla á morgun kl. 15:00 við Austurvöll. Þó svo að umtalsverðir sigrar hafi unnist undanfarna daga má ekki slá slöku við. Enn á eftir að skipta um í Seðlabanka og mikilvægt er að halda nýrri stjórn við efnið. Um kvöldið verður svo boðið til hátíðar á Nasa þar sem nokkrar vel þekktar hljómsveitir koma fram.
Í sautján vikur hafa Raddir fólksins barist gegn flokksræði og siðleysi í íslenskum stjórnmálum. Tugþúsundir Íslendinga hafa flykkst á Austurvöll til að knýja fram virkt lýðræði og nýja stjórnarskrá. Með samstilltu átaki fjöldans og einbeittum markmiðum hefur okkur tekist að ná glæsilegum áfangasigri. Ein óvinsælasta stjórn Íslandssögunnar er fallin, boðað hefur verið til kosninga og búið er að víkja stjórn Fjármálaeftirlitsins frá störfum

Flokksræðið og siðleysið ráða enn ríkjum á Íslandi, þar hefur enginn sigur unnist. Nýja stjórnin er eins vanhæf og sú síðasta, enda situr annar helmingur hennar enn að kötlunum. Þetta skiptið í boði VG og Framsóknarflokks Finns og Ólafs. Ég hef engann áhuga á að veita þessarri stjórn aðhald, henni skal mótmælt til jafns við fyrri ríkisstjórn þar til skipuð hefur verið þjóðstjórn og þar með tekið fyrsta skrefið að afnámi flokksræðis á Íslandi.
Ég vona að Íslendingar láti ekki blekkjast af þessum kattarþvotti, þessum nýja stólaleik Samfylkingar og Vinstri Grænna. Betur má ef duga skal!
Það hefur marg sýnt sig að spillingin og siðleysið gær yfir línuna, það er enginn “flokkur” undanskilinn. Því er orðið “gegnrotið” gjarnan notað. Það er háalvarlegt að sömu einstaklingarnir skuli aftur og aftur geta sest í valdastóla þrátt fyrir alvarleg spillingar- og siðleysisbrot í starfi. Jafnvel lögbrot. Ef ekki í stól á alþingi; þá er útvegaður þægilegur hálaunastóll úti í bæ.
Dæmi: Viðskiptaráðherra lofaði gegnsæi fyrir nokkru. Það hefur ekki bólað á því ennþá.
Það þykir sjálfsagt í stjórnmálum að ljúga upp í opið geðið á almenningi. Skoðið síðustu mánuði. Þetta er eitt af því sem verður að breytast - og listinn er langur.
Varðandi “flokksræðið”, þá er það háalvarleg atlaga að lýðræðinu hér og í raun ofbeldi gegn almenningi. Umræddur kattarþvottur breytir engu þar um.
Ástandið er óviðunnandi.