Um okkur

Nú þegar glundroðinn í samfélaginu er alger höfum við í „Nýjum tímum“ sett okkur skýr markmið.

Markmið „Nýrra tíma“:

  1. Að Geir H. Haarde og ríkisstjórn hans fari frá völdum
  2. Að mynduð verði þjóðstjórn
  3. Að kosið verði við fyrsta mögulega tækifæri

Um þessi atriði deilum við ekki í „Nýjum tímum“. Við teljum þau grundvöllinn fyrir því að hægt sé að byggja upp Ísland að nýju. Trúverðugleiki forsætisráðherra er enginn og erlendis sætir þolinmæði okkar gagnvart ríkisstjórninni undrun.

Við stöndum sameinuð um þessa undirstöðuþætti í „Nýjum tímum“ og munum beita öllum löglegum aðferðum til að knýja þá fram - í nafni réttlætis.

Þegar 1. og 2. liðnum er náð getum við farið að ræða framhaldið - þangað til þurfum við að standa saman gegn okinu og spillingunni sem nú er orðin svo augljós.

Við í „Nýjum tímum“ bjóðum öllum Íslendingum að ganga til liðs við okkur. Allir sem vilja vinna að þessum einföldu markmiðum geta fundið samfélag hjá okkur. Leggjum öll innantóm deilumál niður og rísum upp í nafni lýðræðis og réttlætis.

Hjá „Nýjum tímum“ göngum við þvert á allar pólitískar flokkslínur og neitum að vera grundvöllur fyrir pólitískt framapot.

„Nýir tímar“ krefjast réttlætis – fyrir þig!

Aðstandendur

  • Andri Sigurðsson
  • Birgir Þórisson
  • Egill Tómasson
  • Guðmundur Hallgrímsson
  • Jóhann Þröstur Pálmason
  • Sara María Eyþórsdóttir
  • Sigurlaug Ragnarsdóttir

Hafa samband

nyirtimar@nyirtimar.com