Archive for the ‘Greinar’ Category

Til hamingju Íslendingar!

Monday, January 26th, 2009

Við í Nýjum Tímum viljum óska öllum Íslendingum til hamingju með árangur síðstu vikna og mánaða. Mótmælendur hafa staðið sig eins og hetjur með ódrepandi vilja sínum til friðsamra mótmæla í öllum regnbogans litum, allt frá ræðum til beinna aðgerða. Það er rétt sem hefur komið fram að hér hefur orðið bylting í aktívisma. Við vonum að eftir þetta tímabil í sögunni sé þjóðin betur undirbúin til þess að veita ríkjandi stjórnvöldum öflugt aðhald þegar þess gerist þörf.

Appelsínugulir áttu vaktaskipti við lögregluna

Friday, January 23rd, 2009

Lætin á miðvikudaginn hafa þjappað mótmælendum saman og gefið skýr merki um að ofbeldi verði ekki liðið. Þegar lögreglan er ekki sýnileg, hverfa óeirðaseggirnir um leið af svæðinu.

Í kvöld gerðust þau undur og stórmerki að við þessi appelsínugulu stilltum upp vegg af fólki framan við óeirðarlögregluna. Skömmu síðar spurði lögreglan að því hvort að þeir ættu ekki bara að draga sig í hlé og við tækjum bara stöðuna við húsið. Það var gert og viti menn, örfáum mínútum síðar var “æsti” hluti krakkanna á svæðinu horfin líka. Það var einfaldlega ekki eftir neinni spennu að sækjast. Yfirvegun fólksins og samstaðan sigraði á nokkrum mínútum það sem að óeirðarsveitir hafa ekki átt roð í í 3 daga.

Appelsínugulir áttu vaktaskipti í kvöld - við óeirðalögregluna!

Hlé á mótmælum um helgina

Thursday, January 22nd, 2009

Borgararhreyfing um þjóðfund 1. des, Landsmenn gegn ríkisstjórninni, Iceland-Calling og Nýir Tímar hvetja alla mótmælendur til að hætta mótmælum og yfirgefa miðbæinn næstkomandi föstudags- og laugardagskvöld.

Veruleg hætta er á að til skrílsláta komi er góðglaðir næturgestir öldurhúsa telja sjálfum sér trú um að þeir hafi göfug markmið í huga með skemmdarverkum. Það er mikilvægt fyrir ábyrga og friðsama mótmælendur og hreyfinguna alla að við séum ekki bendluð við slíkt.

Mótmælin undanfarnar vikur hafa borið árangur, ríkisstjórnin er fallin og forsætisráðherra flúði úr stjórnarráðinu í gær. Stofnun samtakanna “Nýtt lýðveldi” þar sem Ísland verður fært úr flokksveldi til lýðræðis með stuðningi allra þeirra grasrótarhreyfinga sem hafa haft sig í frammi undanfarið, er í burðarliðnum.

Við hvetjum hinsvegar til áframhaldandi friðsamlegra mótmæla á öðrum tímum, stanslaust, þar til núverandi ríkisstjórn hefur sagt af sér og hvetjum alla landsmenn til að mæta á Austurvöll næstkomandi laugardag klukkan 15:00.

Friðsöm appelsínugul bylting!

Thursday, January 22nd, 2009

Appelsínugulur er sameiginleg yfirlýsing friðsamra mótmælenda:

  • Við erum appelsínugul
  • Við erum friðsöm
  • Við viljum breytingar

Appelsínugulur.is

Þingmenn taka undir kröfur Nýrra Tíma og mótmælenda

Wednesday, January 21st, 2009

Magnús Þór Hafsteinsson skrifar eftirfarandi á bloggið sitt:

“Það voru mikil mistök að hér skyldi ekki skipuð þjóðstjórn strax í október, og síðan boðað til kosninga nú í janúar. Hefði það verið gert þá gætum við verið að ganga til slíkra kosninga nú. Þá hefðu málið þróast með öðrum hætti en nú er að gerast.”

Stjórnin verður að fara frá - Magnús Þór

Þeir sem áður vildu ekki skipta stjórninni út í miðjum “björgunarleiðangri” eru nú farnir að sjá að það er enginn leiðangur og stjórnini virðist ekki vita hvað hún á að gera. Ef hún veit það, þá er hún ekki að upplýsa almenning um stefnuna.

Áskorun til forseta Íslands

Wednesday, December 17th, 2008

Við landsmenn förum þess einarðlega á leit við yður, hæstvirtan forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson, að þér í krafti embættisins hafnið samþykki á fjárlögum þeim sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram.

Fjárlagafrumvarpið mun velta gríðarlegum skuldaklafa yfir á almenning í landinu til margra ára, skuldum sem til var stofnað af óheilindum af hálfu athafnamanna sem störfuðu í skjóli stjórnmálaflokka, stjórnsýslu og stofnanaumhverfis sem hafa algerlega brugðist hlutverki sínu.

Frumvarpið er mesta aðför sem nokkru sinni hefur verið gerð að sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum, öldrunarheimilium, framhaldsskólum, háskólum og flestum öðrum þeim stofnunum sem almennt gera Ísland að vestrænni menningarþjóð. Það eykur misskiptingu í samfélaginu, leggur auknar álögur á þá sem minnst mega sín og neyðir fleiri en ella til að draga fram lífið á bótum sem ekki duga til framfærslu.

Nánar á this.is/askorun

Hér er áskorun til forseta Íslands um að samþykkja ekki fjárlagafrumvarp ríkisstjórnainnar. Ef þú ert sammála þá vinsamlegst klipptu afrit af áskoruninni og límdu í tölvupóst til forseti@forseti.is og oth@forseti.is

Vinsamlega senda CC á netfangið askorun@this.is - svo við getum fengið einhverja hugmynd um hversu margir taka þátt.

Sjálfboðaliðar til söfnun undirskrifta fyrir kjosa.is

Friday, November 28th, 2008

Nýir tímar og Kjósa.is ætla að vera á Austurvelli á morgun og á Arnarhól á mánudaginn við söfnun undirskrifta til þess að þrýsta á stjórnvöld að boða til kosninga. Þeir sem geta lagt okkur lið eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur tölvupóst á netfangið: nyirtimar@nyirtimar.com

Söfnunin á Kjósa.is hefur verið í gangi í nokkrar vikur en aðeins hafa safnast 6.000 undirskriftir.

Kjósendur á Íslandi telja ekki fært að hefja uppbyggingarstarf eftir bankahrunið nema með endurskoðuðu umboði stjórnvalda. Í lýðræðisþjóðfélagi er það aðeins hægt með kosningum til Alþingis og myndun ríkisstjórnar byggða á þeim meirihluta sem þá nær saman eða þjóðstjórn fái enginn flokkur skýrt umboð kjósenda.

Því fleirir sjálfboðaliðar, því betra! Hvetjum ykkur öll til að vera dugleg að skrá sem flesta inn rafrænt á kjosa.is og verum dugleg að hjálpa öðrum til að skrá sig inn líka.

Lög um ráðherraábyrgð

Sunday, November 23rd, 2008

10. gr. Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum: a. ef hann misbeitir stórlega valdi sínu, enda þótt hann hafi ekki beinlínis farið út fyrir embættistakmörk sín; b. ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.

11. gr. Brot gegn lögum þessum varða, eftir málavöxtum, embættismissi, sektum …1) …2) eða fangelsi allt að 2 árum. Við ákvörðun refsingar skal höfð hliðsjón af 70. gr. almennra hegningarlaga.
Hafi ráðherra jafnframt brotið gegn hinum almennu hegningarlögum, skal hegning sú, sem hann hefur til unnið, tiltekin í einu lagi samkvæmt reglum 77. gr. almennra hegningarlaga.

13. gr. Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir lögum þessum, skal og þegar þess er krafist, jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir almennum reglum.

Sjá lög um ráðherraábyrgð á vef Alþingis

Vantrausttillagan hunsuð á Alþingi Íslands

Sunday, November 23rd, 2008

Eins og málin standa núna þá eru þingmenn í “viðræðum” við forseta Alþingis, Sturla Böðvarsson, sem vill að umræðan um vantraust verði ekki rædd fyrr en á þriðjudagskvöld og henni verði útvarpað - en ekki sjónvarpað eins og tíðkast á daginn.

Þarna er augljóslega verið að mismuna fólki um aðgang að fá að fylgjast með umræðunni hjá RÚV eins og venjulega.

Þingmenn vilja hins vegar hafa umræðuna strax á mánudag kl. 13:30 eða 15:00, því þeir geta ekki hugsað sér að ræða við þessa ónýtu ríkisstjórn á mánudegi og þriðjudegi eins og vantrauststillagan sé bara ein af þessum venjulegu þingmannatillögum sem ekkert verður gert með.

Í stað þess að ræða vantraustið á að ræða frumvarp ríkisstjórnarinnar um að setja 2 milljarða króna úr ríkissjóði til að bjarga bílaumboðunum í kreppunni?

Þeir sem vilja lýsa vantrausti sínu á Ríkisstjórn Íslands og vilja mótmæla þessu ráðabruggi eru vinsamlegast beðnir að senda forseta Alþingis tölvupóst og mótmæla þessari afgreiðslu tafarlaust!

Netfang forseta Alþingis er:

sturla@althingi

Þeir sem vilja mótmæla því að ekki verði sýnd bein útsending frá RÚV þegar ræða á vantrausttillöguna yfir höfuð sendi póst til:

pall.magnusson@ruv.is

Með sameiginlegu áttaki getum við mótmælt þessu og hvetjum alla til að áframsenda þennan póst.

Sameinuð Stöndum Vér!

Tilkynning vegna mótmæla á morgun

Friday, November 14th, 2008

Mótmælin eru ekki hugsuð sem áróður um að taka upp Evru eða ganga inn í ESB heldur bara til að minna fólk á að lausnirnar sem voru lagðar á borð í dag voru á engan hátt fullnægjandi að flestra mati, það var ekkert talað um krónuna - gjaldmiðilinn okkar - sem er í frjálsu falli. Fólk hefur mestar áhyggjur af því og er nú ráðvilltara en nokkru sinni fyrr.

Við erum óháð en það mega allir tjá sig hvernig sem þeir vilja en við tökum ekki undir áróður af pólitísku tagi á nokkurn hátt.

Þetta er ætlað þeim sem vilja láta svekkelsi sitt í ljós en ekki skipun til eins né neins - aðeins tillaga! Öllum er frjálst að velja - hafna, þannig virkar nú bara lýðræðið.

Að kasta krónunni er eingöngu gert til að minna þá á að fólk vill fá svör núna hvað gjaldmiðilinn okkar snertir og ekkert meira en það? Við getum mótmælt því að búið sé að eyðileggja krónuna, sama hvaða leið verður svo fyrir valinu.