Mótmæli á morgun - Heimilin í forgang!
Thursday, May 7th, 2009Á morgun, föstudaginn 8. maí 2009 verða mótmæli vegna aðgerðarleysis íslenskra stjórnvalda gagnvart stöðu heimilanna í landinu.
Staðsetning Alþingishúsið klukkan 13:00
Fjölmennum því á morgun við Alþingishúsið klukkan 13:00, göngum síðan upp að Stjórnarráði þar sem ríkisstjórnin mun sitja að störfum og látum í okkur heyra.
Við viljum minna stjórnvöld á að heimili landsmanna eru að brenna upp í skuldum og að sú “Skjaldborg” sem slá átti um hemilin sé hvergi sjáanleg.
Þolinmæði flestra íslendinga er að þrotum kominn!
Almenningur í landinu hefur þurft að sýna ótakmarkaða þolinmæði gagnvart stjórnvöldum sem á móti sýna landsmönnum enga vægð þegar að innheimtuaðgerðir eru annars vegar.
Margir sjá sér ekki annara kosta völ en að fara i greiðsluverkfall.
Slagorð:
1. Aðgerðir eru valkostur!
2.- Greiðsluverkfall - lokaúrræði?
3. Skjalborg óskast!
4. Björgum heimilunum!
5. Heimilin í forgang!
Í gegnum tíðina hafa stjórnvöld hlustað þegar að almenningur fjölmennir og mótmælir, reynslan hefur sýnt okkur það og kennt okkur það að samstaða er það eina sem skiptir máli.
Sýnum samstöðu - Mætum öll!
f.h Nýrra Tíma
Sigurlaug Ragnarsdóttira
