Mikilvægt er að mæta á morgun því nú þegar einn þingmaður hefur sagt af sér er búið að taka tappan úr - það koma fleiri á eftir en það gerist ekki nema með þrýstingi og það verður að þrýsta þéttar að Alþingi.
Margir tóku þátt í bréfaskrifunum okkar til Alþingis, sem gerðu það að verkum að innanhúsmenn á Alþingi hafa talað við okkur og skrifað okkur. Núna sem aldrei fyrr verðum við að standa saman og láta allan heiminn vita af því að við látum ekki bjóða okkur meir, erlend stjórnvöld og stofnanir vilja ekki lána okkur peninga þar sem þeir treysta ekki Ríkisstjórninni sem nú situr sem fastast. Þetta kostar okkur gífurlegar fjárhæðir með hverri mínútu sem líður og menn vilja ekki víkja vegna ótta við að upp um þá komist, spilinguna sem þeir halda utan um og nú skulu þeir víkja!
Hvetjið alla til að mæta, taka sér hádegishlé og sýna samstöðu. Öðruvísi sjáum við aldrei neinar breytingar! Friðsamleg Mótmæli við Alþingishúsið á morgun !
Sláum skjaldborg utan um Alþingishús okkar Íslendinga. Tökum höndum saman og myndum SKJALDBORG utan um Alþingishúsið klukkan 12:00 á morgun, miðvikudag - 12. nóvember.
Ríkisstjórnin víki Nú Þegar!