Tilkynning: Breiðfylking grasrótarhreyfinga
Sunday, January 25th, 2009Nýir Tímar styðja myndun breiðfylkingar grasrótarhreyfinga sem hefði að markmiði að styðja framboð við næstu kosningar.
Á glæsilegum fundi talsmanna fjölmargra grasrótarhreyfinga um lýðræðisumbætur var samþykkt að tengja saman grasrótina og mynda samstöðu breiðfylkingar með það meginmarkmið að koma á nauðsynlegum breytingum og umbótum á íslensku samfélagi. Breytingum sem ekki verður undan vikist að gera í kjölfar efnahagshruns þjóðarinnar, allt frá bráðaaðgerðum til varnar heimilum og atvinnulífi til endurreisnar lýðræðis á Íslandi.
Fundurinn samþykkti að vinna að framboði grasrótarhreyfinga við næstu kosningar.
